Reykjavíkurmaraþon
Næstkomandi laugardag verður Reykjavíkurmaraþonið haldið í fertugasta og annað sinn þar sem fjöldinn allur af hlaupurum mun taka þátt og hlaupa í maraþoninu til styrktar góðra málefna. Það er að mörgu að huga þegar kemur að undirbúningi og þjálfun og því fengum við til okkar þau Silju og Danna til þess að ræða um undirbúninginn fyrir hlaupið.
