Curaprox er svissneskt merki sem sérhæfir sig í tannhirðu og leggur áherslu á forvarnir, mildi og vísindalega þróaðar lausnir. Vörurnar eru hannaðar í nánu samstarfi við tannlækna og tannfræðinga og einkennast af einstaklega mjúkum burstum, stílhreinni hönnun og mikilli virkni – án þess að skaða tennur eða tannhold. Curaprox vörurnar eru fyrir fólk sem vill stuðla að góðri tannheilsu alla ævi án málamiðlana.
Það sem einkennir Curaprox vörurnar:
- Einstaklega mjúkir burstar – Curen þræðir sem eru notaðir í tannburstunum og veita mjög árangursríka hreinsun en fara jafnframt mildum höndum um tannholdið.
- Vísindalega þróaðar í samstarfi við tannlækna og aðra tannheilsusérfræðinga
- Án skaðlegra efna – ekkert SLS í tannkremum
- Forvarnir í forgrunni – vernda tannhold, glerung og koma í veg fyrir tannsjúkdóma
- Litrík og stílhrein hönnun
- Gæði og ending – svissnesk framleiðsla með mikla áherslu á gæði
- Vörur fyrir alla aldurshópa – frá börnum til fullorðinna og einnig sérstakar vörur fyrir fólk með sérþarfir t.d. fólk sem er að berjast við sjúkdóma og eru fyrir vikið með mjög viðkvæmt tannhold

Vörumerkjastjóri




