Taktu hlaupin á næsta stig með meiri hraða, krafti og dempun í nýjum og endurbættum Pegasus Plus 2.
Meiri orkuflutningur en í forvera sínum, léttari sóli með Superlight ZoomX froðu og sýnilegum ZoomAir loftpúðum undir táberginu. Ultralight ZoomX froða í miðsóla gerir skóinn léttari og mýkri en nokkru sinni fyrr. ZoomAir loftpúðar undir tábergi veitir dempun og kraft í hverju skrefi. Yfirbyggingin hefur verið endurhönnuð með sérstöku stuðningsbandi yfir fótinn sem stiður við og heldur fætinum á réttum stað. Léttari yfirbygging sem tryggir jafna og góða loftun.
Uppfærð hönnun á sóla með skásettu mynstri og skörpum brúnum sem veita betra grip og auka jarðtengingu. Frábær hlaupaskór fyrir þá sem vilja meiri hraða, léttleika og orku í hverju skrefi. Skór sem hentar í tempo hlaup og sem hraðari æfingaskór eða sem auka skór í dagleg hlaup.
Hvað er nýtt?
Meiri orkuskil við tábergið með ZoomAir loftpúða undir táberginu og uppfærðu sniði og aukinni sveigju undir tábergi
Breitt snið við tásvæði (e.toebox) sem veitir meira frelsi og aðlagast fætinum betur
Uppfærður sóli með sveigjuráum (e. Flex grooves) fyrir meiri hreyfanleika og tilfinningu
Vöruupplýsingar:
Þyngd: 265 grömm (herra stærð 44)
Drop: 10 mm.





