Fara á efnissvæði

Kalon bás á F&R

Það var líf og fjör í Laugardalshöll þegar sýningin Fit & Run fór fram. FIT&RUN er einstök sýning fyrir alla fjölskylduna þar sem áhersla er lögð á undirbúning hlaupara fyrir Reykjavíkurmaraþon, almenna hreyfingu, heilsufæði, fatnað, skóbúnað og aðrar stuðningsvörur hlauparans.

Við hjá Kalon tókum að sjálfsögðu þátt í gleðinni og kynntum vöruframboð okkar frá NIKE, NOW, Camelbak, MUNA, Sonett og Curaprox. Eins og svo oft áður var mikið fjör og viljum við þakka öllum þeim sem komu á Kalon básinn fyrir frábæra skemmtun og áhugaverðar umræður.