Fara á efnissvæði

FH X NIKE

Á laugardaginn var undirritaður nýr fjögurra ára samningur við Kalon. Knattspyrnudeildin mun því halda áfram að spila og æfa í fatnaði frá Nike

“Við hjá Nike erum gríðarlega stolt af afar farsælu samstarfi við FH undanfarin ár og hlökkum til komandi ára með FH í Nike. Þessi tvö vörumerki eiga það sameiginlegt að búa yfir miklum metnaði og fagmennsku og með það að leiðarljósi mun þetta samband bara vaxa svo báðir aðilar geti verið stoltir af.” Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, deildarstjóri íþróttadeildar.

"FH og Nike hafa átt í frábæru samstarfi frá árinu 2018. Bæði keppnisfólkið okkar og iðkendur eru mjög ánægð með vörurnar frá Nike og um leið hefur úrvalið af FH vörum verið að aukast með árunum. Það er því mikill hagur beggja að byggja á sterku sambandi og stefnum við á að gera enn betur saman á næstu árum. FH er og verður stórt félag og stórt félag á að vera í stóru íþróttavörumerki. Áfram FH og Nike." Valdimar Svavarsson formaður knattspyrnudeildar FH.