Fara á efnissvæði
Merki Speedo logo
Uppruni Ástralía
Flokkar Sundföt, Fylgihlutir

Speedo

Speedo er eitt þekktasta og virtasta vörumerki sundheimsins. Fyrirtækið var stofnað á Bondi Beach í Ástralíu árið 1928 af skoska frumkvöðlinum Alexander McRae og hefur síðan þá verið leiðandi í þróun sundfatnaðar og búnaðar fyrir sundfólk um allan heim. Í gegnum árin hefur Speedo verið í fararbroddi nýsköpunar og fleiri Ólympíugull hafa unnist í Speedo en í sundfatnaði nokkurs annars merkis.

Speedo kom fyrst til Íslands árið 1963 þegar Torfi Tómasson flutti vörumerkið inn til landsins. Icepharma tók við umboðinu árið 2014 og hefur síðan unnið markvisst að því að byggja upp og styrkja stöðu merkisins hér á landi.

Markmið Speedo er einfalt: að hvetja fólk til að synda. Hvort sem það er í sundlaug, sjó eða náttúrulaug. Speedo býður upp á sundföt og búnað sem gera hverja stund í vatninu betri fyrir afreksíþróttafólk, sundiðkendur og alla sem njóta þess að vera í vatni.

Hafðu samband

Spurningar um Speedo?

Okkar fólk getur svarað þeim. 

Kaloni2026 K217654
Vörumerkjastjóri

Dögg Ívarsdóttir