Now er fjölskyldurekið fyrirtæki sem hefur í yfir hálfa öld verið leiðandi í framleiðslu á hágæða vítamínum og bætiefnum. Frá upphafi hefur markmiðið verið að gera heilbrigðan lífsstíl aðgengilegan öllum með vörum sem byggja á vísindum, gagnsæi og virkni.
Mikil áhersla er lögð á gæði hráefna. Vörurnar eru þróaðar á rannsóknarstofum Now og prófaðar af óháðum rannsóknarstofum til staðfestingar. Þannig er tryggt að þær standist strangar gæðakröfur, skili raunverulegum ávinningi og séu lausar við óæskileg efni, svo sem litarefni, bragðefni, rotvarnarefni og óþarfa fylliefni.
Now býður upp á heildstæða nálgun að heilsu, með fjölbreyttu úrvali vítamína, steinefna, jurtablanda, ilmkjarnaolía og annarra náttúrulegra fæðubótarefna – allt hannað til að styðja líkamann á sem bestan hátt.
Now stendur fyrir áreiðanleika, heiðarleika og stöðug gæði. Þú getur treyst því að hver tafla innihaldi nákvæmlega það magn sem tilgreint er á umbúðum.
Með Now færðu vörur sem byggja á áratugalangri reynslu, ströngum gæðastöðlum og einlægri trú á að heilsa sé ein mikilvægasta fjárfesting sem við gerum.





Spurningar um Now?
Okkar fólk getur aðstoðað.

