Sofum saman með NOVA og Now
Now og NOVA buðu nýverið í viðburðinn Sofum saman í Eden jógastúdíói þar sem svefn og vellíðan voru í forgrunni. Markmið kvöldsins var að varpa ljósi á mikilvægi góðs svefns og kynna leiðir sem geta stutt við betri slökun og svefngæði.
Gestir kvöldsins fóru heim afslappaðir og endurnærðir – sem er kannski ekki sjálfgefið eftir viðburð.
Svefn sem grunnstoð heilsu
Á undanförnum misserum hefur áhersla á andlega heilsu og heildræna vellíðan aukist, og svefn er ein af mikilvægustu grunnstoðum góðrar heilsu.
Kvöldið hófst á fræðslu frá Dr. Erlu Björnsdóttur um svefn, svefnvenjur og þau tæki og tól sem geta bætt svefngæði. Hún fjallaði jafnframt sérstaklega um svefn kvenna og hvernig þættir á borð við tíðahring og breytingaskeið geta haft áhrif á svefn.
Dr. Erla Björnsdóttir er sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum með sérþekkingu á hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Hún stendur á bak við SheSleep, vettvang sem styður konur í að efla svefn og heilsu.
Slökun og stuðningur við betri svefn
Ásdís grasalæknir kynnti bætiefni frá Now sem geta stuðlað að slökun og bættum svefngæðum. Hún fjallaði einnig um bætiefni sem styðja við hormónajafnvægi og geta dregið úr streitu. Ásdís er með B.Sc.-próf í grasalækningum, hefur starfað við fagið í um 20 ár og starfar jafnframt hjá Kalon.
Viðburðinum lauk með Jóga Nidra djúpslökun undir leiðsögn Erlu. Gestir fengu teppi, bangsa og svefngrímur og mátti sjá og heyra að sumir dottaðu – og flestir yfirgáfu salinn með ró og endurnýjaða orku.
Djúpslökun
Viðburðinum lauk með Jóga Nidra djúpslökun sem Erla leiddi. Gestir fengu teppi, bangsa og svefngrímur og mátti heyra á mörgum að sumir hefðu hreinlega dottað og yfirgefið viðburðinn afar afslappaðir og endurnærðir.





