Í nýrri vörumerkjaherferð NOW á Íslandi er lögð áhersla á að fanga þá virkni sem einkennir vörur frá NOW. Yfirskrift herferðarinnar er Veldu virkni. Ljósmyndari herferðarinnar, Ari Magg, nær þessu fram með myndum teknum með löngu ljósopi þar sem hreyfingin fær að njóta sín og skapar sterka tilfinningu fyrir virkni bætiefnanna.
NOW framleiðir náttúruleg bætiefni úr hágæða hráefnum án óþarfa fylliefna. Sú nálgun endurspeglast í myndefninu – kraftmikið, lifandi og í stöðugri hreyfingu.
Hljóðheimur herferðarinnar er í höndum Dags Patrekssonar, ungs og upprennandi tónlistarmanns sem skapar stemmningu og kraft sem styður við heildarupplifunina.
Módelin í herferðinni eru á breiðu aldursbili og endurspegla þann fjölbreytta hóp sem NOW þjónar. Vörulínan spannar allt frá vítamínum fyrir börn til bætiefna sem styðja við heilsu og vellíðan á öllum æviskeiðum, frá æsku og barneignum til streitutímabila, breytingaskeiðs og íþróttaiðkunar.





