Endurbætt útgáfa
Nýi Nike Pegasus 42 tekur einn vinsælasta hlaupaskó heims á næsta stig. Með nýrri Air Zoom einingu sem nær eftir allri ilinni færðu enn mýkri og kraftmeiri hreyfingu, sem skilar meiri orku í hverju skrefi.
ReactX millisólinn er um 13% viðbragðsfljótari en fyrri React tækni og veitir einstakt jafnvægi á milli mýktar, stöðugleika og spyrnukrafts. Útkoman er létt og lífleg hlaupaupplifun sem hentar jafnt í stuttar æfingar sem og lengri hlaup.
Pegasus 42 kemur einnig með endurbættu sniði þar sem meira pláss er í framfæti og við tábergið, sem eykur þægindi án þess að skerða stuðning. Nýtt og betrumbætt efni tryggir betri öndun og heldur fótunum ferskum á meðan uppfærður sólinn tryggir gott grip og aukinn sveigjanleika á malbiki og hörðu undirlagi.
Helstu kostir:
- Air Zoom eining eftir allri ilinni fyrir meiri orku og flæði í hlaupinu
- ReactX millisóli sem er 13% viðbragðsfljótari en fyrri kynslóð
- Rúmbetri skór fyrir aukin þægindi, sérstaklega í framfæti
- Létt og einstaklega gott efni sem tryggir góða öndun
- Endurbættur sóli með frábæru gripi og endingu
- 10 mm halli frá hæl yfir í tær sem hentar fjölbreyttum hlaupurum
Nike Pegasus 42 er hannaður fyrir þá sem vilja áreiðanlegan hlaupaskó sem sameinar þægindi, hraða og endingu.

